Eldhús
K-2 Loftstokkahreinsun býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á eldhúsháfum. Stefna okkar er að vera ávalt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað. Allir okkar starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er.
Nauðsynlegt er að gera úttekt á eldhúsháfum reglulega og hreinsa þá einu sinni eða oftar á ári. Eftir fyrstu hreinsun bjóðum við upp á að koma og meta ástand á loftræstingu frá eldhúsi á nokkura mánaða fresti til að sjá hvað þarf að líða langt á milli hreinsanna, ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Að hreinsun lokinni er kerfið vottað og skoðunarmiði frá okkur settur upp til staðfestingar á hreinsun fyrir eftirlit.
Regluleg hreinsun stuðlar að:
- Minni eldhættu
- Kröftugra útsogi
- Lengri líftíma blásara
- Rafmagnssparnaði
- Þægilegra vinnuumhverfi starfsmanna
K2 Loftstokkahreinsun er í nánu samstarfi við ýmis fyrirtæki sem hafa yfir að ráða viðamikilli sérþekkingu á ýmsum sviðum loftræstikerfa. Með þessu samstarfi tryggir K2 Loftstokkahreinsun að hægt sé að veita viðskiptamönnum sínum ýmsa sértæka þjónustu sem hluta af heildarlausn, sé þess óskað.

Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands
