Skipaþjónusta

I am text block. Click edit button to change this text.

Skipaþjónusta

K-2 Loftstokkahreinsun býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun og sótthreinsun, viðhaldi og eftirliti loftræstikerfa í skipum o.fl. Stefna okkar er að vera ávalt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað Allir okkar starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er.

Miklu máli skiptir að það sé gott eftirlit með loftræstingu skipa. Þurrt loft og yfirþrýstingur getur haft víðtæk áhrif á líðan starfsmanna. Með því að hreinsa reglulega og hafa virkt eftirlit með loftræstingu má í mörgum tilfellum auka afköst og fækka veikindadögum.

K2 Loftstokkahreinsun er í nánu samstarfi við ýmis fyrirtæki sem hafa yfir að ráða viðamikilli sérþekkingu á ýmsum sviðum loftræstikerfa. Með þessu samstarfi tryggir K2 Loftstokkahreinsun að hægt sé að veita viðskiptamönnum sínum ýmsa sértæka þjónustu sem hluta af heildarlausn, sé þess óskað.

Lífsnauðsynlegt

Súrefni er manninum nauðsynlegt. En eins hagnýtt og loftræstikerfi getur verið, á vinnustað, heima eða annars staðar í híbýlum fólks getur það hæglega breyst yfir í andstæðu sína ef ekki er hugað að reglulegu eftirliti og þrifum á kerfinu.

RANNSÓKNIR HAFA LEITT Í LJÓS:

  • Að við eyðum um það bil 90% af tíma okkar innandyra og því hefur það loft sem við öndum að okkar mikil áhrif á heilsuna.
  • Tengsl milli mengunar í lofti innandyra við margvíslega sjúkdóma
  • Að loft innandyra getur verið allt að 70 sinnum mengaðra en loft utandyra.
  • Að svokölluð húsasótt (e. Sick Building Syndrome) einkennist af vanlíðan, ofnæmi og astma. Húsasótt er þekkt afleiðing lélegrar loftræstingar. Starfsfólk merkir fljótt þegar loftræstikerfið er ekki að virka sem skyldi; vanlíðan, höfuðverkur, húðerting, augna- og munnþurrkur og fleiri óþægindi eru dæmi um einkenni húsasóttar. Atriði sem geta valdið minni afköstum og aukið á fjarvistir starfsmanna. Fólk með ofnæmi og astma er sérstaklega viðkvæmt fyrir húsasótt.

Sótthreinsun með D-Sun (Byotrol):

K-2 Lofstokkahreinsun hefur einkaleyfi á notkun Byotrol-misturs en það hefur valdið byltingu í sótthreinsun. Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu.

Hafðu samband og pantaðu fría ástandsskoðun í Síma: 557 7000

  • Skipaþjónusta

  • Skipaþjónusta

  • "Þetta eru fyrirmyndarpiltar sem unnu vel og fagmannlega. Við erum mjög ánægðir með þann góða tækjabúnað sem þeir hafa og þá þjónustu sem við fengum hjá K-2."

    Umsögn frá Rannsóknaskipinu Dröfn.
  • "Starfsmenn K-2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu."

    Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands
  • "Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum. Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K-2 vann það fljótt og örugglega."

    Umsögn frá húsfélaginu í Engihjalla 7, Kópavogi.

Hafa Samband

    drakkarSkipaþjónusta